Ung i Norden í Þórshöfn í Færeyjum
Menningarmótið Ung i Norden verður haldið í Þórshöfn í Færeyjum 28. júní – 2. júlí 2006. Á hátíðinni verða uppákomur og sýningar ásamt listasmiðjum undir stjórn atvinnulistamanna. Í lok vikunnar verður sett upp sameiginleg sýning allra smiðjanna í Norðurlandahúsinu.
Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar (ÍTH) hefur undanfarin ár séð um framkvæmd og þátttöku í menningarmótinu fyrir Íslands hönd. Auk Hafnarfjarðar hafa Kópavogur, Reykjanesbær, Grindavík, Hornafjörður og Ísafjörður staðfest þátttöku í Ung i Norden 2006.
Nú höfum við fararstjórarnir opnað hér blogg sem við ætlum að reyna að skrifa á reglulega fram að ferðinni og daglega í ferðinni til þess að færa fólkinu heima fréttirnar af því hvernig allt saman gengur.

0 Skoðanir:
Skrifa ummæli
<< Heim